29.05.1957
Efri deild: 116. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 1945 í B-deild Alþingistíðinda. (1874)
116. mál, félagsheimili
Menntmrh. (Gylfi Þ. Gíslason):
Herra forseti. Hv. þm. V-Sk. er mikill áhugamaður um eflingu félagsheimilasjóðs og byggingu félagsheimila. Þeim áhuga fagna ég sannarlega, því að hér er um hin mestu nytsemdarmál að ræða. Ég vil aðeins benda á í tilefni af ummælum hans áðan, að fyrir tæpum 2 klukkustundum var hv. Nd. að samþ. lög, sem tryggja munu félagsheimilasjóði 900 þús. kr. auknar tekjur frá því, sem var á s.l. ári, en tekjuaukinn mun væntanlega verða ekki undir milljón, miðað við þær heildartekjur, sem munu hljótast af skemmtanaskatti á næsta ári. Vona ég og treysti því, að hv. þm. viðurkenni, að hér hafi verið sæmilega á haldið þessu nytsemdarmáli, sem hann ber svo mjög fyrir brjósti, þar sem tekjur félagsheimilasjóðs munu þegar á seinni hluta þessa árs aukast um allt að því 1/2 millj. og um ekki minna en eina millj. á næsta ári.