27.05.1957
Sameinað þing: 60. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 2405 í B-deild Alþingistíðinda. (211)

Varamenn taka þingsæti

Forseti (GJóh):

Síðasti fundur í Sþ. var haldinn 22. maí. Það, sem gerði m.a., að þetta svar barst ekki fyrr, var það, að hv. 1. þm. Reykv. var fjarverandi og ég vildi ekki birta þessa yfirlýsingu, nema hann væri við.

Viðvíkjandi þeirri fsp., sem hann gerði áðan, hver hefði samið úrskurðinn, þá er því að svara, að úrskurðurinn eða yfirlýsingin er samin af mér í samráði við skrifstofustjóra Alþingis.