29.05.1957
Neðri deild: 113. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 2151 í B-deild Alþingistíðinda. (2299)

123. mál, hlutafélög

Bjarni Benediktsson:

Herra forseti. Vera kann, að þær yfirlýsingar, sem hér hafa komið fram, og grg. frá einstökum þm. verði taldar máli skipta um lögskýringu, og skal ég ekki lítið gera úr því. Hitt er víst, að á fyrri stígum þessa máls var hjá a.m.k. sumum stuðningsmönnum þessa frv. og í n., þegar málið var rætt, allt annar skilningur uppi. Ég benti þá á, að þetta þyrfti að athuga nánar, og öruggt er ekki um skilninginn, nema brtt.samþ. Ég tel því vissast að samþ. hana, jafnvel þótt ég telji nú sýnt, að þingdeildin muni samþ. frv. í þeirri trú, að skilningur ákvæðisins verði sá, sem brtt. segir til um. Engu að síður er öruggast að samþ. hana, og segi ég því já.