13.02.1957
Sameinað þing: 30. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 102 í D-deild Alþingistíðinda. (2456)

100. mál, jöfn laun karla og kvenna

Ragnhildur Helgadóttir:

Herra forseti. Ég hygg, að af því, sem fram hefur komið í þessum umræðum, muni nú vera grundvöllur fyrir því að brtt. svo hljóðandi nái fylgi:

Við tillöguna hætist ný málsgrein, svo hljóðandi:

Jafnframt ályktar Alþingi að fela ríkisstjórninni að gera hið fyrsta ráðstafanir til, að samþykktin komist í framkvæmd hér á landi.