22.05.1957
Sameinað þing: 59. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 127 í D-deild Alþingistíðinda. (2499)

27. mál, dráttarbraut á Seyðisfirði

Frsm. (Halldór Ásgrímsson):

Herra forseti. Eins og tekið er fram í nál. á þskj. 570, hefur fjvn. rætt þessa till. til þál. um dráttarbraut á Seyðisfirði og sent hana vitamálastjóra til umsagnar, sem leggur til, að rannsakaðar verði aðstæður og gerð kostnaðaráætlun um dráttarbraut þar fyrir allt að 650 smál. skip. Hins vegar leggur hv. þm. Seyðf. (BjörgJ) til, að miðað sé við skip allt að 2000 smál.

Að athuguðu máli telur fjvn. rétt að miða við 1000 smál. skip og leggur einróma til, að þannig breytt verði þáltill. samþykkt.