15.05.1957
Sameinað þing: 57. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 132 í D-deild Alþingistíðinda. (2519)
154. mál, atvinnuleysi
Félmrh. (Hannibal Valdimarsson):
Herra forseti. Það er von, að menn láti til sín heyra, þegar þeir finna til afleiðinga atvinnuleysisins. En ég held ég verði að biðja hv. 1. þm. Reykv. að eiga hlut að því, að n. geri sig löglega, eins og hann orðaði það sjálfur, áður en hún fer að taka upp betlistafinn til að biðja um mál til meðferðar. Mér skilst, að n. sé ekki komin á laggir enn þá og þannig ekki starfhæf, og á meðan er ekki hægt að vísa til hennar neinu máll. Auk þess er þess að geta, að allar alþjóðasamþykktir, sem þingið hefur fyrr og síðar fjallað um, hafa farið til allshn. í Sþ.