22.12.1956
Efri deild: 42. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 2416 í B-deild Alþingistíðinda. (279)

Þinghlé

forseti (BSt):

Þessi fundur, sem nú hefur verið haldinn, verður án efa síðasti fundur deildarinnar fyrir jól.

Ég leyfi mér að óska öllum hv. þingmönnum í deildinni gleðilegra jóla.

Þeim hv. þingmönnum, sem eiga heima utan Reykjavíkur, óska ég góðrar heimferðar og heimkomu, og öllum oss, að vér megum hittast hér heilir á næsta fundi, sem verður boðaður nánar með dagskrá á næsta ári.