22.12.1956
Efri deild: 42. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 2416 í B-deild Alþingistíðinda. (280)

Þinghlé

Jóhann Jósefsson:

Ég vil — og tel mig mega mæla það fyrir munn annarra hv. deildarmanna — þakka hæstv. forseta fyrir góðar óskir og óska honum einnig góðrar heimkomu, jólahátíðar og góðrar endurkomu aftur til starfs hér í þessari deild.

Ég vil biðja hv. deildarmenn að staðfesta þetta með því að rísa úr sætum. — [Þm. risu úr sætum.]