23.01.1957
Sameinað þing: 20. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 387 í D-deild Alþingistíðinda. (2812)

59. mál, innflutningur á olíum og bensíni

Forseta (EmJ):

Það er nú komið nokkuð fram yfir venjulegan fundartíma, en ég vildi mega freista þess að ljúka þessum mjög óvenjulegu umr., sem eru orðnar allmikið öðruvísi en ég ætla að gert sé ráð fyrir að fyrirspurnatími sé, þar sem eingöngu er leitað eftir upplýsingum. En þar sem. aðeins einn hv. þm. er á mælendaskrá, vildi ég gefa honum orðið.