22.12.1956
Sameinað þing: 18. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 2416 í B-deild Alþingistíðinda. (283)

Þinghlé

Ólafur Thors:

Herra forseti. Ég leyfi mér fyrir hönd þingmanna að þakka hlýleg ummæli og góðar óskir. Við þingmenn þökkum hæstv. forseta réttláta og röggsamlega fundarstjórn, óskum honum og ástvinum hans gleðilegra jóla og biðjum þeim gæfu og blessunar. Ég bið hv. þingmenn að staðfesta orð mín og óskir með því að rísa úr sætum. — [Þm. risu úr sætum.]