12.04.1957
Sameinað þing: 51. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 2417 í B-deild Alþingistíðinda. (292)

Þinghlé

forseti (EmJ):

Verkefni þessa fundar er það eitt að skýra frá, að störfum Alþingis eða fundarhöldum verður nú frestað um sinn, eða fram yfir páska, til miðvikudagsins 24. þ. m., en þá munu fundir hefjast á ný. Ég vil nota tækifærið til að óska öllum hv. alþm. gleðilegrar hátíðar og þeim, sem fara burt úr bænum til heimila sinna, góðrar ferðar og góðrar heimkomu og að við megum allir hittast hér á ný að þessu þinghléi loknu.