04.03.1957
Neðri deild: 61. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 77 í C-deild Alþingistíðinda. (2957)

60. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Bjarni Benediktsson:

Ég tel, að hér sé um að ræða mikilsvert mál, sem þurfi að leysa úr sem fyrst. Ég get tekið undir það, sem hv. flm., 2. þm. Reykv., sagði, að ekki er að búast við því, eins og á stendur, að fullkomin lausn finnist á þessu þingi. En ég get ekki greitt því atkvæði að vísa málinu til hæstv. ríkisstj., þar sem ég treysti henni ekki til þess að finna farsæla lausn þessa máls frekar en annarra, og greiði því ekki atkvæði.