19.11.1956
Neðri deild: 17. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 222 í C-deild Alþingistíðinda. (3136)
40. mál, útsvör
Flm. (Ragnhildur Helgadóttir):
Herra forseti. Frv., sem hér er til umr., um breyt. á lögum um útsvör, nr. 66 frá 1945, er sama eðlis og frv. um breyting á lögum um tekjuskatt og eignarskatt, sem rétt áðan var hér til umræðu.
Nú mun útsvar lagt á eftir efnum og ástæðum, og er þá tekið tillit til flestra sömu aðstæðna og til greina koma við ákvörðun tekjuskatts og eignarskatts. Þó er í útsvarslögum gerð sérstök undantekning að því er til skattfrelsis sparifjár tekur. Og með því að hér er um nokkuð hliðstætt atriði að ræða, þykir rétt að hafa einnig um það beint undantekningarákvæði í 4. gr. útsvarslaga. Að öðrum kosti væri hugsanlegt, að sá skatthluti, sem ríkið gæfi mönnum eftir, væri aftur frá þeim tekinn til bæjar- og sveitarfélaga, og með því væri að engu orðin sú hvöt. sem ákvæðið ætti að vera fólki til styrktarstarfsemi:
Það, sem sagt var um opinbera aðila í fyrri ræðu minni, á bæði við um ríki, bæjar- og sveitarfélög, og mun ég því ekki endurtaka þau orð. Og sama er að segja um tilgang frv. og rök, sem eru hin sömu varðandi hæði frumvörpin. Ég leyfi mér því að vænta þess, að þessu frv. verði einnig vísað til hv. fjhn.