14.03.1957
Neðri deild: 67. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 257 í C-deild Alþingistíðinda. (3206)

121. mál, ríkisborgararéttur

Frsm. (Björn Ólafsson):

Herra forseti. Nefndin hefur borið fram brtt. til viðbótar við frv. til laga um veitingu ríkisborgararéttar. Mælir hún með, að umsækjanda séu veitt borgararéttindi, enda uppfyllir hann öll þau skilyrði, sem n. hefur farið eftir við athugun á þeim umsóknum, sem legið hafa fyrir þinginu.