17.12.1956
Efri deild: 30. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 746 í B-deild Alþingistíðinda. (3325)
32. mál, orlof
Félmrh. (Hannibal Valdimarsson):
Herra forseti. Þetta frv. hefur nú farið í gegnum Nd., og ef ég man rétt, þá var það afgr. ágreiningslaust úr nefnd þar. Efni frv. er það, að orlof skuli lengjast úr 12 dögum í 18 virka daga. Breytingin er þó ekki í rauninni eins mikil og þessar tölur benda til, því að samkv. samningum atvinnurekenda og stéttasamtakanna hefur orlof í framkvæmd um nokkurt skeið verið 5%, og í síðustu samningum var ákveðið, að það yrði 6% eða 18 dagar, og er í raun og veru að því leyti verið að færa löggjöfina til samræmis við það, sem gilt hefur í framkvæmdinni.
Annað atriði frv. er það, að hlutarsjómenn skuli fá fullt orlof eins og það starfsfólk, sem tekur laun sín að öllu leyti í peningum, en hingað til hafa hlutarsjómenn aðeins fengið hálft orlof eða 3%. Þetta getur síður nú en áður orðið deiluefni, þar sem mér er kunnugt um, að nú þegar er gengið út frá þessari breytingu á orlofslögunum í samkomulagi því, sem verið er að ljúka við útgerðarmenn.
Þriðja atriðið, sem í þessu frv. felst, er það, að orlofskröfur skuli fyrnast með sama hætti og almennar kaupkröfur. En hingað til hefur það verið svo, að orlofsréttur hefur getað fyrnzt á einu árí, en hins vegar er fyrningarfresturinn 4 ár, eins og kunnugt er, að því er snertir almennar kaupkröfur.
Ég sé ekki ástæðu til að fara fleiri orðum um frv., býst ekki við, að það sé neitt ágreiningsmál, neitt sem í þessu frv. felst, og þar að auki eru nánari skýringar á þessu í athugasemdum með frv.
Ég legg til, að frv. verði að umr. lokinni vísað til hv. félmn.