02.11.1956
Neðri deild: 10. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 268 í B-deild Alþingistíðinda. (345)

12. mál, festing verðlags og kaupgjalds

Forsrh. (Hermann Jónasson):

Ég mun, eins og forseti tók fram, svara þessum ræðum síðar. Það er allt of stuttur tími til þess, þrjár mínútur. Út af þessari seinustu yfirlýsingu mun ég koma með yfirlýsingu frá þeim mönnum, sem ég leitaði til, og þá verða menn að gera sér grein fyrir því, hvoru þeir trúa, þessari yfirlýsingu eða þeirri, sem ég mun koma með á fundinn á mánudaginn.