30.11.1956
Neðri deild: 24. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 279 í B-deild Alþingistíðinda. (353)

12. mál, festing verðlags og kaupgjalds

Frsm. (Skúli Guðmundsson):

Herra forseti. Frv. þessu var vísað til fjhn., og var rætt þar um málið á tveim fundum. N. hefur gefið út álit á þskj. 90. Þar eru birtar athugasemdir um frv. frá einstökum nm., og kemur þar fram, að skoðanir þeirra eru dálítið mismunandi um málið. Þó má segja, að allt falli í einn farveg að lokum, því að nm. eru allir sammála um að leggja til við hv. þd., að hún samþ. frv. eins og það liggur fyrir.