11.10.1956
Sameinað þing: 1. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 10 í B-deild Alþingistíðinda. (4)

Rannsókn kjörbréfa

Aldursforseti (JJós):

Þá verður fundi haldið áfram. Geri ég ráð fyrir, að nú séu kjördeildarálit fyrir hendi, og hef hugsað mér að hafa þann hátt á, að fyrst tali frsm. meiri og minni hl., ef þeir eru til, eða framsaga höfð á hendi fyrir fyrstu kjördeild, og þegar framsögu fyrir fyrstu kjördeild er lokið, þá fari fram framsaga fyrir aðra og svo þriðju. Ef enginn mælir því í gegn, þá hafði ég hugsað mér að hafa þennan hátt á.