20.12.1956
Neðri deild: 36. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 454 í B-deild Alþingistíðinda. (540)
86. mál, bráðabirgðafjárgreiðslur úr ríkissjóði
Jóhann Hafstein:
Herra forseti. Ég vil aðeins út af því, sem fram kom hjá hæstv. ráðh. seinast, að hv. 1. þm. Reykv. hefði ekki mátt vera að því að vera hér í gærkvöld, þegar stóra mál stj. var lagt fram, láta það koma fram, að þar missti hann ekki af neinu og tafði ekki heldur framgang málsins meðan hann var á fundi annars staðar, þá töluðu hér þrír hæstv. ráðh., og í öllum ræðum þeirra eða í engri ræðu þeirra komu fram neinar nýjar upplýsingar til viðbótar við þær fátæklegu upplýsingar, sem eru í hinni rýru grg. með stjfrv. um útflutningssjóðinn.
Viðvíkjandi svo hinu, að hv. þm. stjórnarliðsins hafi verið önnum kafnir við undirbúning mála á þessu þingi og þess vegna haft nóg að gera, þó að tæpast hafi verið hægt að halda hér fundi nema vegna þess, að stjórnarandstaðan flutti frv., þá kemur mér það nokkuð einkennilega fyrir sjónir og ekki sízt í sambandi við það stóra mál, sem er á döfinni hér nú um útflutningssjóð, því að hafi maður spurt einhvern þm. úr stjórnarliðinu upplýsinga um einstök atriði í því máli utan fundar til þess að fræðast, þá hefur maður alltaf komið að tómum kofunum, og margir þessara manna hafa sagt við mig: Ég hef ekki hugmynd um, hvað í þessu frv. felst, — svo að einhverjir úr stjórnarliðinu hafa ekki lagt á sig mikil störf til þess að undirbúa það stóra mál, sem ætti þó að vera eitt af stærstu málunum. Nei, ég held, að það sé alveg sannmæli, sem fram kom hjá 1. þm. Reykv., að það hefði vissulega verið hægt að hafa aðra starfstilhögun á málum hér á þessu þingi nú, og hún er með mjög annarlegum hætti, þó að hins vegar, eins og nú er komið, sé ekki ástæða til þess að bregða fæti fyrir þetta og hægt að fallast á það, að þetta frv., sem hér liggur fyrir, nái fram að ganga.