20.12.1956
Neðri deild: 36. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 456 í B-deild Alþingistíðinda. (543)
86. mál, bráðabirgðafjárgreiðslur úr ríkissjóði
Jóhann Hafstein:
Herra forseti. Mér þykir rétt að bæta nokkru við, úr því að hæstv. fjmrh. er farinn að byrsta sig, og ég vil þá ítreka það, sem ég sagði áðan, að það er ekki rétt hjá honum, að ég hafi bara við einstaka þm. rætt einstök atriði. Við höfum verið í allan morgun á fundi í fjhn. Nd. um stóra málið, um útflutningssjóðinn, og það hefur glöggt komið fram í þeirri nefnd og hjá þeim mönnum, sem handgengnastir hafa verið hæstv. fjmrh. einmitt í fjárhagsmálefnum, hversu nauðaókunnugir þm. stjórnarflokkanna eru þessu máli. Og það mætti jafnvel segja mér það, að það væru einhverjir, jafnvel innan hæstv. ríkisstj., sem þyrftu að fá einhverjar frekari upplýsingar í þessu máli. Og úr því að ráðh. var að beina því til 1. þm. Reykv., að honum hefði ekki veitt af að vera hér í gærkvöld til þess að fá upplýsingar, vil ég segja það, að hann missti ekki af neinum upplýsingum á fundinum í gærkvöld. En hæstv. ríkisstj. skal verða spurð og hún skal verða innt eftir frekari upplýsingum og skýringum um þetta mál áður en lýkur, og geta þá kannske fleiri byrst sig en hæstv. fjmrh.