23.10.1956
Efri deild: 3. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 307 í B-deild Alþingistíðinda. (583)

4. mál, bifreiðaskattur o. fl.

Fjmrh. (Eysteinn Jónason):

Herra forseti. Með þessu frv. er lagt til að framlengja þau ákvæði, sem í lögum eru nú um viðauka á innflutningsgjöld á bifreiðaskatti og benzíni, og leyfi ég mér að leggja til, að frv. verði vísað til hv. fjhn. að lokinni þessari umr.