16.10.1956
Sameinað þing: 1. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 136 í B-deild Alþingistíðinda. (59)
Drengskaparheit unnin
Aldursforseti (JJós):
Það, sem næst mundi liggja fyrir, ef störfum þingsetningar væri haldið áfram í dag, væri kjör forseta Sþ., en með því að hæstv. ríkisstj. hefur óskað eftir því, að það verði ekki gert fyrr en á morgun, þá er fundi hér með frestað og verður haldið áfram á morgun á venjulegum fundartíma.