22.01.1957
Efri deild: 43. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 717 í B-deild Alþingistíðinda. (773)

3. mál, húsnæðismálastjórn

Forseti (BSt):

Mér þykir sanngjarnt að verða við þessari ósk í þetta sinn, en ef það dregst lengi, að hv. 11. landsk. komi til þings, getur það ekki gilt um mjög langan tíma, að málið verði ekki tekið á dagskrá, enda er hv. 2. þm. Árn. auðvitað fært að gefa út nál., ef hv. 11. landsk. verður ekki kominn næstu daga til þings. Málið er þá tekið út af dagskrá skv. ósk hv. 2. þm. Árn.