01.02.1957
Neðri deild: 49. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 977 í B-deild Alþingistíðinda. (978)
105. mál, lækkun tekjuskatts af lágtekjum
Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):
Ég skal láta þessum umr. lokið og ekki deila á hv. þm., sem hafa talað og notað sína athugasemdatíma. En ég vil taka fram, að það kom nú fram hjá hv. 2. þm. Eyf., og staðfestist þá það, sem ég var að benda á áðan, að hann vill mjög fast halda sér við, að Sjálfstfl. hafi beitt sér harðsnúið fyrir auknu frelsi í fjárfestingarmálum, það hafi verið hans verk. Þetta kemur nú raunar illa heim við sumt af því, sem áður hefur verið sagt hér í dag og annars staðar. En út af þessu vil ég bara kasta fram þessari spurningu: Halda menn þá ekki, að stefnan í fjárfestingarmálum hafi haft einhver áhrif á þróunina í efnahagsmálum undanfarið?
Þá sagði hv. 2. þm. Eyf., að það væri mjög ósanngjarnt af mér að halda því fram, að ég hafi orðið að standa á móti háum útgjaldakröfum sjálfstæðismanna í sambandi við fjárlögin. Það er alls ekki ósanngjarnt af mér að halda þessu fram, vegna þess að þetta er satt. Það hefur verið sótt gífurlega á að hafa fjárlögin hærri en þau hafa verið. En mundi hv. 2. þm. Eyf., — hann svarar því bara seinna, — mundi hv. 2. þm. Eyf. með þeim kunnugleika, sem hann hefur á þessum málum, treysta sér til þess að taka undir þau ummæli hv. 1. þm. Rang., að ég hafi staðið fyrir því að hækka fjárlögin um 100 millj. á ári undanfarin ár? Ég efast um það. En ég ætlast ekki til, að því sé svarað núna. Ég varpa þessu fram til íhugunar.