07.12.1956
Efri deild: 25. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 983 í B-deild Alþingistíðinda. (998)

70. mál, kosningar til Alþingis

Frsm. (Jón Kjartansson):

Herra forseti. Það þarf ekki langa framsögu fyrir þessu máli. Þetta er staðfesting brbl., sem gefin voru út 26. maí vegna kosninganna. Þessi brbl. eru búin að hafa sínar verkanir, og sýnist máske óþarfi að afgreiða þetta sem lög, en það mun engu að síður vera venja til þess að staðfesta þær gerðir ríkisstj., sem fram fóru. Allshn. leggur til, að frv. verði samþykkt.