04.11.1957
Efri deild: 16. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 51 í B-deild Alþingistíðinda. (112)

2. mál, bifreiðaskattur o. fl.

Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):

Herra forseti. Þetta mál fjallar um framlengingu á ákvæðum, sem gilda á þessu ári varðandi álagningu viðbótargjalds á benzín, og enn fremur um viðauka á bifreiðaskatt. Þetta mál hefur gengið ágreiningslaust gegnum hv. Nd. Leyfi ég mér að leggja til, að því verði vísað til fjhn. d. að lokinni þessari 1. umr.