21.11.1957
Efri deild: 24. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 1450 í B-deild Alþingistíðinda. (1267)
18. mál, umferðarlög
Páll Zóphóníasson:
Herra forseti. Ég vil taka undir með þingmanni Ak. og hv. 11. landsk., að ég tel óráð að fresta þessari umr. Málið liggur þannig fyrir, að það er hér til umræðu á síðasta stigi. Það kemst þá til Nd., og Nd. liggur á því eins og á fyrra, vinnur ef til vill eitthvað í því, en kemur því aldrei frá sér. Í fyrra lá þessi sama breyting fyrir, sem nú liggur fyrir hér um ökuhraða. Flm. höfðu allan veturinn í fyrra til að ná í þessar upplýsingar. Það var lagt fram núna snemma á þinginu, nærri í þingbyrjun, og þeir eru ekki enn búnir að ná í þessar upplýsingar. Það er þess vegna alveg augljóst mál, að mennirnir, sem báðir eru sæmilega duglegir, hefðu verið búnir að geta það hundrað sinnum, ef þá hefði langað nokkuð til þess, ef þeir hefðu haft nokkurn áhuga á málinu. Það er þess vegna ekki neitt annað en til þess að reyna að tefja framgang málsins, sem þeir eru með þetta núna. Og ég skora á forseta að láta atkvgr. fara fram.