14.04.1958
Neðri deild: 77. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 1528 í B-deild Alþingistíðinda. (1363)

95. mál, sala jarða í opinberri eigu

Sigurður Ágústsson:

Herra forseli. Það er sjálfsagt að verða við beiðni hv. formanns landbn. að fresta afgreiðslu þessa máls til 3. umr., en það eru þá einlæg tilmæli mín til hv. landbn., að hún taki betri tökum þetta mál nú, en þegar það var til umr. eða í meðferð hennar á síðasta þingi hvað snertir eyðijörðina Hrafnkelsstaði.