21.04.1958
Neðri deild: 81. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 1532 í B-deild Alþingistíðinda. (1370)

95. mál, sala jarða í opinberri eigu

Forseti (EOl):

Ég vil leyfa mér að líta svo á, að brtt. á þskj. 354 skoðist sem brtt. við sjálft þskj, á 383 og að það sé aðeins a-liðurinn, sem komi til atkvæða Ég leyfi mér, ef enginn hefur neitt við það að athuga, að líta á þetta sem leiðréttingu, sem ekki þurfi nein afbrigði, því að þetta hefur hlotizt eðlilega af því, að till. var tekin aftur við 2. umr. og frestað til 3.