02.05.1958
Efri deild: 87. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 1585 í B-deild Alþingistíðinda. (1525)
172. mál, aðstoð við vangefið fólk
Frsm. (Alfreð Gíslason):
Herra forseti. Hv. heilbr.- og félmn. hefur rætt frv. til l. um aðstoð við vangefið fólk á nokkrum fundum sínum. N. leitaði umsagnar Félags ísl. iðnrekenda um frv. og fékk svar frá félaginu. Í því bréfi er tekið fram, að öl- og gosdrykkjaframleiðendur leggist eindregið gegn frv. En Félag ísl. iðnrekenda segir í lok þessa bréfs á þessa leið:
„Af því, sem að framan segir, leggjum vér eindregið til, að frv. verði vísað til ríkisstj. eða því breytt í samræmi við framangreindar atbugasemdir vorar. Vér tökum fram, að vér teljum hið nýstofnaða Styrktarfélag vangefinna þörf og nauðsynleg félagssamtök, sem tryggja þarf hæfilegan tekjustofn, en athugasemdir vorar eru að sjálfsögðu miðaðar við hagsmuni iðnfyrirtækjanna og iðnaðarins í heild.“
Í bréfinu er á það bent, að það sé óþægilegt að skylda iðnfyrirtæki til að standa öðrum aðilum, en innheimtumönnum ríkissjóðs skil á innheimtu gjalds. Enn fremur er bent á, að gjaldfresturinn, eins og hann er ákveðinn í frv., sé of stuttur og styttri en gerist um opinber gjöld. Segir þar, að fjmrn. og tollstjórinn í Reykjavík hafi í framkvæmd viðurkennt tveggja mánaða gjaldfrest á tollvörugjaldinu. Loks er á það bent af iðnrekendum, að með því að söluskattur og útflutningssjóðsgjald komi til með að verða lögð á þessa 10 aura hækkun, þá séu þar með lagðar auknar fjárhagsbyrðar á herðar þessum iðnrekendum.
Þetta eru helztu aths., sem gerðar eru af félaginu við frv.
Heilbr.- og félmn. leggur til, að frv. verði samþ. með fjórum brtt., sem eru á þskj. 450. Tvær af þessum brtt., 2. og 3. brtt., eru í þá átt að verða við ábendingum iðnrekenda og koma til móts við þeirra óskir. Fyrsta till. er eingöngu um orðalagsbreytingu á 1. gr., og hið sama er raunverulega um 4. till., hún er ekki annað en orðalagsbreyting á 4. gr. — Ég tel svo ekki þörf á að hafa um þetta fleiri orð.