15.11.1957
Neðri deild: 22. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 16 í C-deild Alþingistíðinda. (1651)

49. mál, veitingasala, gististaðahald o. fl.

Eiríkur Þorsteinsson:

Formaður samgmn., sem kjörinn var framsögumaður n. í þessu máli, hefur beðið mig vegna fjarveru sinnar að segja örfá orð með frv. því, er hér liggur fyrir.

N. hefur flutt þetta mál eftir beiðni samgmrn., og hún tók málið ekki til neinnar sérstakrar rækilegrar athugunar á þeim fundi, sem hún hélt um málið, heldur sendi það hér inn óbreytt, og áskilja nm. sér fullan rétt til fylgis við breytingar, sem gerðar kunna að verða eða koma fram við málið, enda hefur n. ákveðið að taka það til rækilegrar athugunar eftir þessa umr. í hv. deild.