06.03.1958
Neðri deild: 61. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 19 í C-deild Alþingistíðinda. (1656)

49. mál, veitingasala, gististaðahald o. fl.

Ingólfur Jónsson:

Herra forseti. Á síðasta fundi, þegar fjallað var um þetta mál, gat ég ekki mætt, vegna þess að ég var við jarðarför, en meiri hluti nefndarinnar hafði þá ákveðið að láta frv. fara fram án þess að flytja brtt. við það.

Síðan eru að vísu nokkrir dagar, og hefði gefizt tími til þess að flytja brtt. Ég er nú að hugsa um að gera það, og ef úr því verður, þá skal ég búa það út í dag. Ég vildi mælast til, að hæstv. forseti frestaði umr. þess vegna.