14.02.1958
Efri deild: 52. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 89 í C-deild Alþingistíðinda. (1782)

13. mál, landhelgisbrot

Forseti (BSt) :

Mér virðist þær ástæður, sem hv. form. sjútvn. færði fyrir því, að nefndin hefur ekki enn skilað áliti, vera gildar. Þar sem ríkisstj. sjálf hefur óskað eftir að segja sitt álit á málinu áður, finnst mér eðlilegt, a. m. k. um tíma, að verða við þeirri ósk. Ég mun því sjá hvað setur, hvort nefndin innan skamms skilar ekki áliti um þetta frv., og ekki taka það á dagskrá án nál., fyrr en mér sýnist útséð um það, að nál. komi.