06.11.1957
Neðri deild: 18. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 157 í C-deild Alþingistíðinda. (1871)

6. mál, eignarskattsviðauki

Fjmrh. (Eysteinn Jónsson) :

Herra forseti. Með frv. þessu er lagt til að framlengja fyrir árið 1958 ákvæði, sem nú er í lögum um að innheimta eignarskatt með álagi, og er gert ráð fyrir sams konar álagi og innheimt er á yfirstandandi ári.

Ég leyfi mér að leggja til, að málinu verði vísað til hv. fjhn. að lokinni þessari 1. umr.