27.02.1958
Neðri deild: 57. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 259 í C-deild Alþingistíðinda. (1988)
101. mál, hegningarlög
Frsm. (Gísli Guðmundsson):
Herra forseti. Mér var nú ekki fyllilega ljóst, af hverju hv. 1. þm. Reykv. (BBen), sem á sæti í allshn., var að gera athugasemd í þessu máli. Ég held, að ég hafi tekið það glögglega fram í minni framsöguræðu, að málið væri flutt eftir beiðni hlutaðeigandi ráðuneytis, og ég held, að ég hafi líka í framsögu beint þeirri ósk til hæstv. forseta, að málið yrði ekki tekið á dagskrá nema í samráði við allshn., til þess að hún hefði ráðrúm til þess að fjalla um málið. Hins vegar er ekki venja að vísa til n. málum, sem eru flutt af nefnd.
Þskj., sem þetta frv. er á, var útbýtt fyrir nokkru hér í hv. deild og hefur verið á dagskrá undanfarið, þó að það hafi ekki komið til umr. fyrr en í dag, og fundur sá, sem hv. þm. minntist á að haldinn hafi verið í allshn. nýlega, fjallaði ekki um þetta mál, heldur um önnur mál, sem n. hefur haft til meðferðar. En úr því að farið er að ræða það, skal ég taka það fram, sem ég sá nú ekki beinlínis ástæðu til á þessu stigi málsins, að þegar þetta mál kom frá ráðuneytinu, eða réttara sagt frá þeirri nefnd á vegum ráðuneytisins, sem frv. hefur samið, hegningarlaganefndinni, var aðeins um eitt frv. að ræða, en við nánari athugun virtist mönnum í n., að réttara væri að skilja frv. í sundur. N. var bent á þetta, eins og hv. þm. tók fram, og ég átta mig ekki á því, að hv. þm. er að tala um, að n, hafi ekkert um það fjallað, því að ég man ekki betur en n. ræddi þetta nokkrum sinnum, bæði fyrr í vetur og nokkru síðar, þ. e. a. s. þessa formshlið málsins. Niðurstaðan varð sú í nefndinni, að málið skyldi sett fram í þessu formi og flutt þetta mörg frv. Það atriði er aðeins formlegs eðlis, en ekki efnislegs á neinn hátt, eftir því sem ég fæ skilið.
Nefndin fær svo væntanlega aðstöðu til þess að athuga frv. milli umr.