07.05.1958
Sameinað þing: 43. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 74 í D-deild Alþingistíðinda. (2378)

63. mál, heymjölsverksmiðja

Benedikt Gröndal:

Herra forseti. Í fjarveru framsögumanns get ég gert þá grein fyrir þessu máli, að allshn, hefur tekið það til athugunar á nokkrum fundum, leitað umsagnar hjá Búnaðarfélagi Íslands og Iðnaðarmálastofnun Íslands. Báðir þessir aðilar eru samþykkir því, að till. nái fram að ganga, og mæla með því. Allshn. leggur til, að till. verði samþykkt.