02.06.1958
Sameinað þing: 49. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 144 í D-deild Alþingistíðinda. (2498)

192. mál, Síldarbræðslan hf Seyðisfirði

Frsm. (Halldór Ásgrímsson):

Herra forseti. Fjvn. hefur rætt málið og orðið einróma sammála um að leggja til við hv. Alþ., sbr. nál. á þskj. 607, að umbeðin ábyrgðarheimild fyrir Síldarbræðsluna h/f á Seyðisfirði, að upphæð 1.8 millj. kr., verði veitt. Hv. þm. Seyðf. hefur í grg. með till. og í framsöguræðu við fyrri umr. gert fulla grein fyrir málavöxtum, og sé ég ekki ástæðu til endurtekninga í því efni.