16.04.1958
Sameinað þing: 39. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 166 í D-deild Alþingistíðinda. (2538)

23. mál, framlag til lækkunar á vöruverði

Bjarni Benediktsson:

Till. hefur þegar náð tilætluðum árangri, og mér kemur alveg í einn stað niður, með hverjum hætti þingið lætur uppi sinn vilja um það, að þessar skýrslur verði gefnar í framtiðinni. Rökstudda dagskráin er, í því formi sem hún er, alveg jafnbindandi fyrir stjórnarvöld eins og samþykkt sjálfrar till., og get ég því mjög vel sætt mig við þennan hátt á afgreiðslunni. Þakka ég n. fyrir hennar verk að þessu leyti.