23.10.1957
Sameinað þing: 5. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 170 í D-deild Alþingistíðinda. (2548)

17. mál, eftirgjöf lána

Flm. (Ingólfur Jónsson):

Herra forseti. Ég vil aðeins mótmæla þeirri aðdróttun, sem hv. 1. þm. N-M. hafði hér til sveitarstjórna í nágrenni við mig. Ég þekki ekki sveitarstjórnir í nágrenni við mig að öðru en fullkomnum heiðarleika. Og ég þekki ekki til annars en sveitarstjórnirnar í nágrenni við mig hafi haft það sjónarmið að leiðarljósi, sem ég nefndi áðan. Ég vil mótmæla þeirri staðhæfingu, sem hv. þm. hafði hér í frammi áðan, og fullyrði, að það, sem ég hef sagt hér í þessu máli, er að mínu áliti sannleikanum samkvæmt.