30.05.1958
Sameinað þing: 48. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 287 í D-deild Alþingistíðinda. (2647)

33. mál, afnám áfengisveitinga á kostnað ríkis

Forseti (EmJ):

Umr. er nú ekki lokið. En ég vildi segja það fyrst út af tilmælum hv. þm. G-K., að til þess að atkvgr. geti farið fram, þarf fyrst og fremst umr. að vera lokið. En æskilegt væri mjög, að sem flestir gætu verið þar viðstaddir. Og ég vildi fyrir mitt leyti, ef hv. flm. hafa ekki á móti því, að málsmeðferðin yrði sú, að þegar umr. væri lokið hér nú, þá yrði atkvgr. frestað þangað til í upphafi næsta fundar, sem ég tryggi að verði, og ætti það ekki að muna miklu, hvort atkvgr. færi fram þá eða nú.