10.10.1957
Sameinað þing: 1. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 6 í B-deild Alþingistíðinda. (2961)

Þingsetning í sameinuðu þingi

Að lokinni guðsþjónustu gengu þingmenn aftur til alþingishússins, fundarsals neðri deildar, Þessir þingmenn voru til þings komnir:

1. Ágúst Þorvaldsson, 1. þm. Árn.

2. Ásgeir Bjarnason, þm. Dal.

3. Benedikt Gröndal, 5. landsk. þm.

4. Bernharð Stefánsson, 1. þm. Eyf.

5. Bjarni Benediktsson, 1. þm. Reykv.

6. Björgvin Jónsson, þm. Seyðf.

7. Björn Jónsson, 8. landsk. þm.

8. Björn Ólafsson, 2. þm. Reykv.

9. Eggert Þorsteinsson, 4. þm. Reykv.

10. Einar Olgeirsson, 3. þm. Reykv.

11. Emil Jónsson, 1. þm. Hafnf.

12. Eysteinn Jónsson, 1. þm. S-M.

13. Finnbogi R. Valdimarsson, 4. landsk. þm.

14. Friðjón Skarphéðinsson, þm. Ak.

15. Friðjón Þórðarson, 11. landsk. þm,

16. Gísli Guðmundsson, þm. N-Þ.

17. Gunnar Jóhannsson, 6. landsk. þm.

18. Gunnar Thoroddsen, 6. þm. Reykv.

19. Gylfi Þ. Gíslason, 3. landsk. þm.

20. Halldór Ásgrímsson, 2. þm, N-M.

21. Halldór E. Sigurðsson, þm. Mýr.

22. Hannibal Valdimarsson, 7. þm. Reykv.

23. Hermann Jónasson, þm. Str.

24. Ingólfur Jónsson, 1. þm. Rang.

25. Jóhann Hafstein, 5. þm. Reykv.

26. Jóhann Jósefsson, þm. Vestm.

27. Jón Kjartansson, þm. V-Sk.

28. Jón Pálmason, þm. A-Húnv.

29. Jón Sigurðsson, 2. þm. Skagf.

30. Karl Guðjónsson, 2. landsk. þm.

31. Karl Kristjánsson, þm. S-Þ.

32. Lúðvík Jósefsson, 2. þm. S-M.

33. Magnús Jónsson, 2. þm. Eyf.

34. Ólafur Björnsson, 9. landsk. þm.

35. Ólafur Thors, þm. G-K.

36. Páll Zóphóníasson, 1. þm. N-M,

37. Páll Þorsteinsson, þm. Á-Sk.

38. Pétur Pétursson, 10. landsk. þm.

39. Ragnhildur Helgadóttir, 8. þm. Reykv.

40. Sigurður Ágústsson, þm. Snæf.

41. Sigurður Bjarnason, þm. N-Ísf.

42. Sigurður Ó. Ólafsson, 2. þm. Árn.

43. Sigurvin Einarsson, þm. Barð.

44. Skúli Guðmundsson, þm. V-Húnv.

45. Steingrímur Steinþórsson, 1. þm. Skagf.

46. Sveinbjörn Högnason, 2. þm. Rang.

Framantaldir þingmenn voru allir á fundi. Ókomnir til þings voru:

1. Alfreð Gíslason, 1. landsk. þm.

2. Áki Jakobsson, þm. Siglf.

3. Eiríkur Þorsteinsson, þm. V-Ísf.

4. Guðmundur Í. Guðmundsson, 7. landsk. þm.

5. Kjartan J. Jóhannsson, þm. Ísaf.

6. Pétur Ottesen, þm.

Borgf. Forsætisráðherra setur þingið.

Þá er þingmenn höfðu skipað sér í sæti, gekk forsætisráðherra til ræðustóls.

Forsrh. (Hermann Jónasson): Vegna fjarveru forseta Íslands hafa handhafar forsetavalds gefið út svo hljóðandi bréf:

„Handhafar valds forseta Íslands samkvæmt 8. gr. stjórnarskrárinnar, forsætisráðherra, forseti sameinaðs Alþingis og forseti hæstaréttar, gera kunnugt:

Að vér veitum forsætisráðherra, Hermanni Jónassyni, umboð til þess í voru nafni að setja Alþingi, 77. löggjafarþing, er koma á saman til fundar fimmtudaginn 10. október 1957.

Gert í Reykjavík, 9. október 1957.

Hermann Jónasson, Emil Jónsson.

Jónatan Hallvarðsson.

Hermann Jónasson.

Bréf handhafa valds forseta Íslands um setningu Alþingis.“

Í ríkisráði 24. sept. s.l. var gefið út svo hljóðandi forsetabréf, er kveður Alþingi til fundar: „Forseti Íslands gerir kunnugt:

Ég hef ákveðið samkvæmt tillögu forsætisráðherra, að reglulegt Alþingi 1957 skuli koma saman til fundar fimmtudaginn 10. október n.k.

Um leið og ég birti þetta, er öllum, sem setu eiga á Alþingi, boðið að koma nefndan dag til Reykjavíkur, og verður þá Alþingi sett að lokinni guðsþjónustu í dómkirkjunni, er hefst kl. 13.30.

Gert að Bessastöðum, 24. september 1957.

Ásgeir Ásgeirsson.

Hermann Jónasson.

Forsetabréf um, að reglulegt Alþingi 1957 skuli koma saman til fundar fimmtudaginn 10. október 1957.“

Samkvæmt umboði því, er ég hef lesið, og forsetabréfinu, er kveður Alþingi til fundar, lýsi ég yfir því, að Alþingi Íslendinga er sett.

Frá því er Alþingi var stofnað, eru nú 1027 ár, frá því er Alþingi var endurreist og kom saman að nýju fyrir 112 árum, er þetta 92. samkoma þess, en frá því er það fékk löggjafarvald fyrir 83 árum, er þetta þing 77. í röðinni, en 60. aðalþing.

Ég vil biðja hv. alþm. að minnast forseta Íslands og fósturjarðarinnar með því að risa úr sætum. — Heill forseta vorum og fósturjörð.

Þingmenn risu úr sætum og tóku undir orð forsætisráðherra með ferföldu húrrahrópi. Aldursforseti gekk því næst til forsetastóls og tók við fundarstjórn.