10.10.1957
Efri deild: 1. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 11 í B-deild Alþingistíðinda. (2976)

Sætaskipun

Sætaskipun. Forseti (BSt):

Næst ber að hluta um sæti þingmanna í deildinni. — Ég skal aðeins benda á, að það hefur oft tíðkazt hér, að veitt hafa verið afbrigði frá þingsköpum um það, að menn hafa fengið að sitja eins og þeir hafa tekið sér sæti. Er nokkur till. um að leita afbrigða um það? (Gripið fram í.) Er það tillaga? En það þarf 3/4 atkv., til þess að það verði samþykkt. — Fram er komin tillaga um, að þingmenn sitji eins og þeir hafa nú tekið sér sæti.