03.06.1958
Sameinað þing: 53. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 1723 í B-deild Alþingistíðinda. (2995)
Almennar stjórnmálaumræður
Forseti (EmJ) :
Tekið er fyrir eina málið á dagskránni, almennar stjórnmálaumræður, framhaldsumræður, útvarpsumræður.
Þessar umræður í kvöld fara þannig fram, að þrjár umferðir verða. Sú fyrsta 20 mínútur á flokk, önnur 15 og þriðja 15.
Röð flokkanna er þannig, að fyrst tala fulltrúar Alþb., síðan Sjálfstfl., þá Alþfl. og loks Framsfl.
Ræðumenn af hálfu Alþb. verða Karl Guðjónsson, Hannibal Valdimarsson og Lúðvík Jósefsson. Af hálfu Sjálfstfl. Jón Pálmason, Ingólfur Jónsson og Gunnar Thoroddsen. Af hálfu Alþfl. Pétur Pétursson, Benedikt Gröndal og Emil Jónsson. Af hálfu Framsfl. Eysteinn Jónsson og Karl Kristjánsson.
Hefst þá umræðan, og tekur fyrstur til máls af hálfu Alþb. hv. 2. landsk. þm., Karl Guðjónsson.