04.11.1957
Neðri deild: 16. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 1944 í B-deild Alþingistíðinda. (3077)

Varamenn taka þingsæti- rannsókn kjörbréfa

forseti (HÁ) :

Mér hefur borizt eftirfarandi bréf :

„Með því að ég er á förum til útlanda og verð fjarverandi næstu vikur, leyfi ég mér, með skírskotun til 144. gr. laga um kosningar til Alþingis, að óska þess, að varamaður, Eðvarð Sigurðsson, ritari verkamannafélagsins Dagsbrúnar, taki sæti á Alþingi, meðan ég verð fjarverandi.

Einar Olgeirsson, 3. þm. Reykv.

Til forseta neðri deildar.“

Eðvarð Sigurðsson hefur áður undirritað drengskaparheit alþingismanna og kjörbréf hans athugað, og leyfi ég mér að bjóða hann velkominn til starfa.