14.05.1958
Sameinað þing: 45. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 1957 í B-deild Alþingistíðinda. (3105)

Varamenn taka þingsæti- rannsókn kjörbréfa

Frsm. (Áki Jakobsson) :

Herra forseti. Kjörbréfanefnd hefur athugað kjörbréf Sveins Guðmundssonar vélfræðings, sem kosinn var af hálfu Sjálfstfl, sem 3. varaþingmaður hans í Reykjavíkurkjördæmi. Leggur n. einróma til, að kosningin sé tekin gild og kjörbréfið verði samþykkt til handa Sveini Guðmundssyni vélfræðingi, þannig að hann taki sæti sem 8. þm. Reykv.