23.04.1958
Sameinað þing: 40. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 1960 í B-deild Alþingistíðinda. (3138)

Raforkuráð

Forseti (EmJ) :

Um kosninguna í raforkuráð er það að segja, að hún hefur nokkrum sinnum verið tekin út af dagskrá samkvæmt ósk. En ég verð að segja, að það er e. t. v. mín sök nú í þetta skiptið, að ég gekk ekki eftir því, hvort þeir, sem ekki voru tilbúnir síðast, væru það í dag. Ég skal taka það á mig. En ég skal lofa því, að það skal verða tekið á dagskrá á næsta fundi.