03.06.1958
Neðri deild: 112. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 1964 í B-deild Alþingistíðinda. (3154)

Starfslok deilda

forseti (EOl) :

Þá er dagskrá þessa fundar lokið. Þetta mun verða síðasti fundur þessarar hv. d. að öllu forfallalausu. Ég vil leyfa mér að þakka öllum hv. þdm. fyrir ágætt samstarf og fyrir það umburðarlyndi, sem þeir hafa sýnt mér. Ég vil um leið leyfa mér að óska þess, að við megum allir sjást heilir aftur í haust. Þeim þm., sem heim fara, vil ég óska góðrar heimferðar og góðrar heimkomu. Skrifurum þingsins vil ég þakka ágætt samstarf og öllu starfsfólki þingsins ágætt samstarf við mig.