12.12.1957
Sameinað þing: 18. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 301 í B-deild Alþingistíðinda. (346)

1. mál, fjárlög fyrir árið 1958

Karl Guðjónsson:

Herra forseti. Þegar þessari 1. umr. fjárl. var frestað á sínum tíma, var fjárlfrv. jafnframt vísað til fjvn., og hefur hún haft það í athugun. Á þessu stigi málsins, þ.e.a.s. við þetta frh. 1. umr., óskar n. ekki eftir að gera neinar aths. við frv., en hefur, eins og þm. er kunnugt um, lagt fram till. sínar, sem vænta má að teknar verði fyrir og ræddar við 2. umr, málsins.