04.11.1957
Neðri deild: 16. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 24 í B-deild Alþingistíðinda. (43)

4. mál, gjaldaviðauki

Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):

Herra forseti. Með þessu frv. er lagt til að framlengja nokkra gjaldaviðauka, sem innheimtir eru á yfirstandandi ári. Þetta mál hefur ágreiningslaust farið í gegnum hv. Ed. Leyfi ég mér að leggja til, að málinu verði vísað til fjhn. þessarar hv. deildar að lokinni þessari 1. umr.