06.02.1958
Neðri deild: 47. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 623 í B-deild Alþingistíðinda. (481)

99. mál, samkomudagur reglulegs Alþingis 1958

Forsrh. (Hermann Jónasson):

Herra forseti. Þetta frv., sem hér liggur fyrir, er flutt að venju vegna þeirra breytinga, sem þarf að gera, til þess að Alþingi sé haldið á þeim tíma, sem venja er til, og er hér lagt til, að reglulegt Alþingi 1958 komi saman föstudaginn 10. okt. — Ég þarf ekki að láta þessu frv. fylgja frekari grg.